Hagstofan auglýsir eftir starfsfólki
Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða spyrla til starfa í tímabundin verkefni. Um er að ræða rannsóknir sem framkvæmdar verða á tímabilinu í lok febrúar til apríl/maí 2010.
Starfið felst að hafa samband símleiðis við þátttakendur.
Hæfniskröfur
- Eiga auðvelt með að tala við fólk í síma og hafa gaman af því.
- Kurteisi, þolinmæði og ábyrgð í starfi.
- Almenn tölvukunnátta.
- Reynsla af spyrlastörfum er mikill kostur.
- Lágmarksaldur umsækjenda er 18 ára
Vinnutími
Unnið er á tveimur vöktum þannig að spyrlar vinna tvo daga og fá tvo daga frí. Vinnutími er frá 17:00 til 22:00 mánudaga til fimmtudaga, frí föstudaga og frá 12:00 til 18:00 laugardaga og frá 13:00 til 18:00 sunnudaga.
Laun
Greidd eru yfirvinnulaun og eru byrjunarlaun 1620 kr. á tímann.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að senda umsóknir til Hagstofu Íslands, Rannsóknir og gagnasöfnun, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík eða á tölvupóstfangið: spyrlastarf [hjá/at] hagstofa [punktur/dot] is
Nánari upplýsingar veita Silja Jóhannesdóttir í síma 528 1225 eða Berglind Björk Hreinsdóttir í síma 528 1221.
Engin athugasemd