Nánari upplýsingar um haustfögnuð
Sælir Stiglar
Fyrst langar mig að færa ykkur þau gleðitíðindi að CCP hefur lofað okkur vísindaferð eftir áramót. Vonast ég til þess að sem flestir muni mæta í hana en nánari upplýsingar um hana koma síðar.
Haustfagnaðurinn verður haldinn nú á föstudaginn. Við hvetjum fólk til að skrá sig (magn bjórs verður í hlutfalli við skráningarfjölda) og minna kennarana sína á að koma. Fögnuðurinn verður haldinn í Funafold 22, 112 Reykjavík og hefst kl. 20:00.
Eins og fram kom í tölvupósti sem þið fenguð er núna hægt að máta peysur í Féló og fram á föstudag. Þegar þið hafið mátað peysu getið þið pantað hana með því að senda okkur tölvupóst (stigull [hjá/at] hi [punktur/dot] is) með eftirfarandi upplýsingum:
Stærð S/M/L/XL/XXL
Snið KK/KVK
Rennilás Já/nei
Litur svart/rautt (rauðu peysurnar voru ætlaðar fyrir fólk sem getur ekki notað svört föt af e-m ástæðum)
Aðeins 18 manns hafa pantað sér peysu eins og staðan er í dag sem er töluvert færra en við gerðum ráð fyrir. Við verðum með peysurnar í haustfagnaðinum á föstudaginn og verður það síðasti sjéns til að máta peysu. Upplýsingar um greiðslu koma svo síðar.
2 athugasemdir